21. ágúst 2007 klukkan 01:53
Um miðnætti í gær lentu 6 stúlkukindur á Keflavík airport, þreyttar en ánægðar eftir viðburðaríka helgi. Já, þær skemmtu sér svo sannarlega í Lundúnaborg. Það má með sanni segja að hver ein og einasta snéri heim með töluvert þyngri ferðatösku og verulega léttari buddu.. ég ætla ekki að hafa þessa sögu langa, heldur renna yfir hápunkta ferðarinnar.
- Hótelið okkar, þar sem ég fékk nett sjokk. Fúkkalykt á ganginum og veggfóðrið að flagna af veggjunum. Engin af okkur þorði inn á klósettið í herberginu okkar Karitasar og Ásbjargar fyrstu 20 mínúturnar af hættu á að vera bitin af ósýnilegri kónguló eð einhverju álíka. Sturtan dugði fyrir tæplega 2 í röð, ef við vorum heppnar 2 og hálfa. Þetta vandist þó og þegar við vorum búin að vera þarna í 2 daga var þetta farið að vera eins og heimili.. svona næstum...
- Þegar Kristín var kölluð upp í kallkerfinu í Top Shop á Oxford Street útaf því að hún týndist.
- Billy Elliot. Magnað.
- Á leiðinni á stansted þegar að á innan við 10 mínútum festist 23ja kílóa ferðataskan mín í hliði á lestarstöðinni og enginn starfsmaður var til að losa hana þannig að kristín massaköggull sparkaði hliðinu opnu þanig gat ég losað hana. Á meðan að á þessu stóð var opið hliðið við hliðná. Engin lyfta var á svæðinu en sirka 50 tröppur upp á lestarpallinn. Vöðvar mínir óxu um heila skóstærð. Og taskan hennar Ásbjargar fékk sjálfstæðan vilja í lestinni og sendist, hljólandi, niður endilangan vagninn þar til hún small á vegginn. Held ég hafi sjaldan hlegið svona mikið.
- Camden Market. Sáum reyndar bara svona 1/20 af öllum markaðinum, vegna heimsku okkar. Förum ekki nánar útí það.
-Þegar Lilja fékk íslenskan tíkall úr miðavél.
- Þegar okkur var boðið í te í Buckingham palace. Djók. Sáum hana bara að utan.
.. Þetta er aðeins brotabrot af öllu sem við náðum að gera, bara nenni ekki að skrifa meira.
Myndirnar eru hér til hægri------> (skellti líka inn myndunum frá Hróaskeldu fyrir þá sem hafa áhuga á því)
TaTa....
Elfa
07. júní 2007 klukkan 00:49
Nú hef ég fylgst spennt með hverri pósu, hverju tári, hverri áskorunninni og hverri heimsendingu af öllum seríum Americas Next Top Model. En í dag, þegar ég var að horfa a enn eina myndatökuna fór ég að velta fyrir mér af hverju ég hef horft á hvern einasta þátt af þessu. Fylgst með einhverjum stelpum útí bæ reyna að verða súpermódel á mánuði og brotna niður undan öllu álaginu. Svo fórnaði ég samt höndum því önnur stelpa en ég vildi var send heim.
Elfa
30. maí 2007 klukkan 00:18
Jæja, mín er ekki fyrr búin í prófum áður en kjellan sest aftur á skólabekk. Í þetta skiptið sumarskólabekk. (Neeei, ég féll ekki, ég er að flýta fyrir).
Það er samt soldið skrýtið að vera bundinn skóla þegar sumafríið er byrjað, en þetta er bara mánuður sem mun líða eins og vindurinn og þá hefst skemmtunin fyrir alvöru. Já þá er ég að tala um partýviku ársins, Hróaskeldu! Þegar ég kem svo heim aftur, búin að fá æluna uppí kok af því að sofa í tjaldi (og kannski einhverju öðru líka) er það bara vinnavinnavinna og vinna, AFMÆLIÐ MITT, London og svo skólinn aftur. Þetta var the 411 á sumrinu mínu...
ÉG er ekki frá því að ég hlakki svolítið til!

* Vúhú, reyklus vinna eftir 3 daga!!
Elfa
19. maí 2007 klukkan 00:37
Ef þú skrifar HEROES með P í staðin fyrir O að þá færðu út HERPES.
hehe...
Elfa
23. apríl 2007 klukkan 19:04
Elfa
29. mars 2007 klukkan 01:19
Mmmmm ég eins og svo margir aðrir get ekki beðið eftir að sumarið gangi í garð, en það eru sumir sem kannski eru aðeeeeins of bjartsýnir um að það sé við næsta horn. Við Silla rákumst einmitt á mann í dag mann á blæjubíl, með blæjuna niðri. Í
stuttermabol!En annars er Vestfjarðarferð kórsins á enda runnin, heppnaðist í allflesta staði með prýði. Gistum á heimavist menntó á ísó, gott svefnpláss og svo held ég að það hafi allir meðlimir kórsins þngst um svona kíló því hvert sem maður fór var góður matur á boðstólnum, takk fyrir það vestfirðingar:)

...ég gleymdi minni myndavél en það eru myndir inná síðunni hennar Lilju sætu.
Árshátíð Sólon var svo haldin með pompi og prakt á mánudagskvöldið á Hótel Selfossi þar sem dýrindis matur og vín flæddi og partý var í hverju herbergi fram á morgun.



Þessi ágæta syrpa lýsir hátíðinni prýðilega... annars ef fólk er forvitið eru fleiri myndir hér til hægri --->
Eins fyrir mig er skóladagur á morgun og ég ætla í háttinn þannig að ég kveð að sinni.
Elfa
26. febrúar 2007 klukkan 00:35
Um daginn sagði ég Leondardo di Caprio þegar ég æltaði að segja Leonardo da Vinci. Leiddi til þess að ég fór að hugsa. Og ég held án efa að ég hefi vitað hver Leonardo diCaprio var áður en ég hafði nokkra hugmynd um að það hefði nokkurntíman verið til vísindamaður sem hét Leondardo da Vinci. Nokk viss um að það segjir sitt um mitt menningarlega uppeldi.
Elfa
19. febrúar 2007 klukkan 00:50
Elfa
03. febrúar 2007 klukkan 01:41
Tjah stúlkur mínar... þið getur ekki ýmindað ykkur hvað ég er búin að setjast niður oft og ætla að blogga um eitthvað sniðugt, en um leið og ég opna bloggforritið þá verður hausinn minn tómur! - ætli ég reyni ekki að skrapa upp eitthvað núna, tek hins vegar enga ábyrgð á ferskleika þess ;)
Uppá síðkastið er allt búið að vera frekar kreisí, mest vegna leikritsins. Þó gaman. Í seinustu viku samt fagnaði ég nýfengnu "frelsi" og ætlaði sko að fara að lifa lífinu utan tjarnabíós, svo ég fór í bíó haha. Fór á Foreldra og The Prestige. Báðar myndirnar bara mjög fínar, maður getur þó ekkert annað gert en að bera Foreldra saman við Börn og ég verð nú að segja að mér fannst Börn betri. The prestige kom mér mjög á óvart, ég fattaði sko ekki allt plottið fyrr en í endann!

Núna um helgina eru svo sýningar og lokasýning á sunnudaginn og reyndar lokasýningapartýið annað kvöld.. það verður MEGA hah!

Hahaha... rakst á þessa mynd á netinu, fannst hún frekar fyndin!
Heyrðu já, ég setti inn myndirnar frá Nýjársballinu fyrir löngu síðan fyrir þá sem vilja skoða. Meirihlutinn samt myndasería af okkur Lilju, lentum í einhverju horni þarna á ballinu og ætluðum að taka mynd af okkur sem varð alveg svona 20 myndir heh..

En jæja, ég verð að fara að fara að sinna djömmurunum. Smell'ya later!

Elfa
02. janúar 2007 klukkan 05:13
Elfa